Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2016 verður haldinn 1. júní næstkomandi

24.5.2016

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins verður haldinn þann 1. júní næstkomandi klukkan 15:00 í Salnum í Kópavogi.

Fundinn ávarpa Ásta Þórarinsdóttir, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri. Þá mun Sven Erik Svedman, forseti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, ávarpa fundinn sem sérstakur gestur.

Til fundarins er boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku eigi síðar en 30. maí nk. til fme@fme.is

Arsfundur-mynd

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica