Fréttir


Annar kynningarfundur vegna innleiðingar Solvency II tilskipunarinnar

12.2.2016

Þann 11. febrúar sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir vátryggingafélög, ytri og innri endurskoðendur vátryggingafélaga og aðra aðila sem hagsmuna eiga að gæta vegna innleiðingar Solvency II tilskipunarinnar. Um var að ræða annan kynningarfundinn í áætlaðri fundaröð vegna innleiðingar Solvency II.

Tilgangur fundarins var að upplýsa framangreinda aðila um helstu mál sem á döfinni eru vegna innleiðingar Solvency II. Efni fundarins varðaði hlutverk innri endurskoðanda í Solvency II, birtingu opinberra upplýsinga, gæði gagna og gjaldþolsliði, einkenni þeirra og flokkun.

Fjármálaeftirlitið hefur lagt áherslu á að undirbúningur vátryggingafélaga fyrir innleiðingu Solvency II gangi vel fyrir sig og var fundurinn þáttur í því að styðja við þann undirbúning.

Kynningarfundur II – innleiðing á Solvency II

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica