Fréttir


Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II

28.1.2016

Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II, verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar nk. kl. 9:00 í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins að Katrínartúni 2, þriðju hæð. Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum vátryggingafélaganna, ytri og innri endurskoðendum þeirra, sem og öðrum sem áhuga kunna að hafa.

Fundardagskrá er eftirfarandi:

  • Hlutverk innri endurskoðenda í Solvency II
  • Framsetning opinberra upplýsinga
  • Gæði gagna
  • Gjaldþolsliðir (Own funds)

Gert er ráð fyrir að fundi ljúki kl. 10:30. Til að fundurinn nýtist þátttakendum sem best eru þeir hvattir til að senda spurningar vegna ofangreindra dagskrárliða til Fjármálaeftirlitsins. Skráning og móttaka spurninga fer fram á fme@fme.is og er skráningarfrestur til og með 10. febrúar nk.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica