Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á innheimtuferli við frum- og milliinnheimtu hjá Motus ehf., Orkuveitu Reykjavíkur og Símanum hf.

11.4.2017

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á innheimtuferli við frum- og milliinnheimtu hjá Motus ehf., Orkuveitu Reykjavíkur og Símanum hf. í janúar 2017. Markmið athugunarinnar var að skoða sérstaklega hvort innheimta félaganna sé í samræmi við góða innheimtuhætti líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 og hvort innheimtuviðvaranir félaganna séu í samræmi við 7. gr. innheimtulaga. Þar á meðal hvort hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar sé í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, með síðari breytingum. Athugunin beindist að upplýsingum um fyrstu fimm innheimtumál sem stofnuð voru í byrjun hvers ársfjórðungs, þ.e. í janúar, apríl, júlí og október 2016, hjá hverjum og einum. Verkferlar félaganna voru skoðaðir, ásamt gjaldskrám þeirra. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í mars 2017 að undangengnum samskiptum við hluteigandi innheimtufélag hverju sinni.
Gagnsaei-Motus-Orkuveitan-Siminn-11042017

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica