Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: nóvember 2017

Fyrirsagnalisti

29.11.2017 : Niðurstaða athugunar á hvort breytingar á stýrivöxtum hafi haft áhrif á þróun útlánavaxta hjá þremur bönkum og tveimur sparisjóðum

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á hvort breytingar á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands hafi haft áhrif á þróun útlánavaxta hjá Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbankanum hf., Sparisjóði Austurlands hf. og Sparisjóði Strandamanna ses. í september 2017. Markmið athugunarinnar var að skoða sérstaklega hvort starfsemi banka og sparisjóða að þessu leyti væri í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Einnig hvort þessir aðilar uppfylltu skilyrði 19. gr. laga nr. 161/2002 en þar kemur fram að fjármálafyrirtæki skuli starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði.

Lesa meira

27.11.2017 : Samkomulag um sátt vegna brots á 57. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki

Hinn 11. október 2017 gerðu Fjármálaeftirlitið og Kvika banki, hér eftir nefndur málsaðili, með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 57. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki (fftl.)

Lesa meira

17.11.2017 : Niðurstöður athugunar á verðmati lausafjármuna við vörslusviptingu hjá Lykli fjármögnun hf. (áður Lýsing hf.).

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á verðmati lausafjármuna við vörslusviptingu hjá Lykli fjármögnun hf. (hér eftir félagið) í janúar 2017. 

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica