Ákvarðanir og gagnsæi


Brot fjárfestingarsjóðs í rekstri Júpíters rekstrarfélags hf. gegn 5. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011

17.5.2019

Fjármálaeftirlitinu barst tilkynning frá Júpíter rekstrarfélagi hf. þann 11. desember 2018 þess efnis að fjárfestingarsjóður í rekstri félagsins hefði farið út fyrir fjárfestingar­heimildir 59. gr. laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði þann 10. desember 2018. Í 5. mgr. fyrrgreinds lagaákvæðis er tiltekið að fjárfestingarsjóðum sé heimilt að fjárfesta án takmarkana í fjárfestingarsjóðum en fjárfesting í sama fjárfestingasjóði megi ekki fara yfir 20% af eignum fjárfestingarsjóðs. Brotið varð vegna mistaka við skráningu fjárfestingarinnar í heimildaskjal áður en viðskiptin voru framkvæmd.
Gagnsaei-Jupiter-17052019  

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica