Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Leiðbeinandi tilmæli

Málsnúmer 1/2001
Heiti Leiðbeinandi tilmæli um efni reglna fjármálafyrirtækja, samkvæmt 15., 20. og 23. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti - [Ekki í gildi]
Dagsetning 31/7/2001
Starfsemi
  • Kauphallir og aðrir tilboðsmarkaðir
  • Verðbréfafyrirtæki
  • Verðbréfamiðlanir
  • Verðbréfamiðstöðvar
  • Viðskiptabankar
  • Sparisjóðir
  • Rekstrarfélög verðbréfasjóða
Reifun

Fjármálaeftirlitið setur leiðbeinandi tilmæli um efni reglna fjármálafyrirtækja, samkvæmt 15., 20. og 23. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti. Þessi tilmæli fela í sér leiðbeiningar um efni reglna fjármálafyrirtækja vegna hagsmunaárekstra. Tilgangur reglnanna er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi fjármálafyrirtækja og draga úr hættu á hlutdrægni við meðferð og afgreiðslu mála. Fyrirtæki þurfa að kappkosta að ýtrustu hagsmuna ótengdra viðskiptamanna sé gætt í verðbréfaviðskiptum og að fullur trúnaður ríki gagnvart þeim. FME leggur á það áherslu að þessar leiðbeiningar fela í sér lágmarkskröfur og því þarf e.t.v. að gera strangari kröfur í einstökum tilfellum til að markmið þeirra náist. Hér er gerð grein fyrir helstu atriðum sem kveða þarf á um í reglunum til að þær hljóti staðfestingu FME. Í þessum leiðbeiningum er gert ráð fyrir að reglurnar taki einnig til viðskipta með gjaldmiðla og afleiðusamninga með gjaldmiðla. Skáletraður texti er ætlaður til frekari útskýringar á þeim atriðum sem fjallað er um.

Tilmælin voru numin úr gildi við gildistöku laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 og reglugerðar nr. 995/2007 og eru grunnur leiðbeinandi tilmæla nr. 4/2014 um aðskilnað starfssviða.

Skjöl Leidbeinandi-tilmaeli-2001-1.pdf

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica