Gagnsæi á fjármálamarkaði
Seðlabankinn birtir yfirlit yfir upplýsingar í samræmi við 1. mgr. 143. gr. tilskipunar 2013/36/ESB um starfsemi og eftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum.
Yfirlitið nær til eftirfarandi efnisþátta:
Lög, reglur og leiðbeinandi tilmæli
Lög, reglugerðir, reglur og leiðbeinandi tilmæli sem sett hafa verið og varða starfsemi og eftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum á Íslandi.Val- og heimildarákvæði
Með hvaða hætti val- og heimildarákvæði í CRD IV löggjöfinni hafa verið nýtt.Könnunar- og matsferli
Almenn viðmið og aðferðafræði sem Seðlabankinn beitir við könnunar- og matsferli (SREP).Tölulegar upplýsingar
Safn tölulegra upplýsinga um starfsemi og eftirlitsaðgerðir fjármálaeftirlitsins og miðast við stöðu 31. desember 2020.Evrópska bankaeftirlitsstofnunin hefur þróað þau sniðmát sem eru notuð. Þau eru birt í reglugerð (ESB) nr. 2019/912 um tæknilegan framkvæmdastaðal varðandi upplýsingagjöf eftirlitsstofnana. Eitt af markmiðunum með birtingu upplýsinganna er að auðvelda samanburð á framkvæmd eftirlits milli eftirlitsstofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins. Samanburð við önnur aðildarríki má finna á heimasíðu EBA.