Sundurliðun fjárfestinga

Með vísan til annars vegar 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, 50. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði og 6. mgr. 48. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, er farið fram á að lífeyrissjóðir, vörsluaðilar séreignasparnaðar  og allir verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og sérhæfðir sjóðir aðrir en fjárfestingarsjóðir sendi upplýsingar um fjárfestingar sínar til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilgangurinn er sá að hafa eftirlit með fjárfestingum með hliðsjón af fjárfestingarheimildum og samþykktri fjárfestingarstefnu.

Útbúið hefur verið XML Schema sem að innsend gögn á XML formi verða að passa við (e.validate).

Frekari upplýsingar og Gagnamódel (e. Data Model) skjal varðandi ofangreint má finna undir flipum fyrir hvern markað hér á síðunni.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica