Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Leiðbeinandi tilmæli

Málsnúmer 1/2002
Heiti Leiðbeinandi tilmæli um innra eftirlit og áhættustýringu hjá fjármálafyrirtækjum - [Ekki í gildi]
Dagsetning 17/1/2002
Starfsemi
  • Viðskiptabankar
  • Sparisjóðir
  • Lánafyrirtæki
  • Verðbréfafyrirtæki
  • Verðbréfamiðlanir
  • Rekstrarfélög verðbréfasjóða
Reifun

Í meðfylgjandi leiðbeinandi tilmælum eru settar fram lágmarkskröfur varðandi innra eftirlit og áhættustýringu hjá fjármálafyrirtækjum. Í tilmælunum er sérstök áhersla lögð á ábyrgð og skyldur stjórna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja. Fyrirmyndin er sótt til grunnreglna um þetta efni sem Basel-nefndin um bankaeftirlit sendi frá sér á árinu 1998.

Með fullnægjandi innra eftirliti og áhættustýringu hjá fjármálafyrirtækjum aukast líkur á að starfsemi og fjárhagsstaða þeirra séu í ásættanlegu horfi með hliðsjón af hagsmunum viðskiptamanna. Reynslan sýnir að undanfari erfiðleika í starfsemi fjármálafyrirtækja hefur verið skortur á yfirsýn stjórnenda, ófullnægjandi markmiðssetning varðandi áhættutöku og veikleikar í innra eftirliti. Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegt að stuðla að styrkingu á þessum þáttum í starfsemi þessara fyrirtækja með útgáfu leiðbeinandi tilmæla.

Höfð hafa verið til hliðsjónar ákvæði 8. mgr. 62. gr. laga nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði, með síðari breytingum, 2. mgr. 11. gr. laga nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði, með síðari breytingum, 8. mgr. 42. gr. laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, með síðari breytingum, og 1. mgr. 43. gr. laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi, með síðari breytingum.

Skjöl Leidbeinandi_tilmaeli_2002_1-ekki-i-gildi.pdf

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica