Leitarvél

Leit í lögum og tilmælum: Sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér til hliðar.

Leiðbeinandi tilmæli

Málsnúmer 3/2011
Heiti Leiðbeinandi tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka - [Ekki í gildi]
Dagsetning 30/9/2011
Starfsemi
  • Lánafyrirtæki
  • Rekstrarfélög verðbréfasjóða
  • Sparisjóðir
  • Vátryggingafélög
  • Verðbréfafyrirtæki
  • Viðskiptabankar
  • Lífeyrissjóðir
  • Greiðslustofnanir
  • Rafeyrisfyrirtæki
  • Vátryggingamiðlanir
  • Vátryggingamiðlarar
  • Verðbréfamiðlanir
Reifun

Fjármálaeftirlitið gefur út endurskoðuð leiðbeinandi tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem leysa af hólmi eldri tilmæli nr. 2/2008 um sama efni frá september 2008.

Tilmælin eru sett til leiðbeiningar fyrir tilkynningarskylda aðila samkvæmt a–e-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, við að framfylgja ákvæðum laganna. Tilgangur tilmælanna er því fyrst og fremst að skýra ýmis ákvæði laganna án þess að um tæmandi skýringar sé að ræða. Tilmælin geta þó orðið grundvöllur krafna Fjármálaeftirlitsins um úrbætur með vísan til laga nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, sérlaga um starfsleyfisskylda starfsemi og alþjóðlegra reglna og skuldbindinga íslenska ríkisins á þessu sviði.

Tilmæli þessi eru fallin úr gildi og voru þau leyst af hólmi með leiðbeinandi tilmælum nr. 5/2014 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Skjöl Leidbeinandi_tilmaeli_3 2011.pdf

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica