Fréttir


Fréttir: 2018

Fyrirsagnalisti

20.12.2018 : Uppreiknaðar evrufjárhæðir laga nr. 100/2016

Fjármálaeftirlitið hefur uppreiknað evrufjárhæðir laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi í samræmi við fyrirmæli laganna.  Eftirfarandi eru uppreiknaðar viðmiðunarfjárhæðir laganna í íslenskum krónum sem gilda fyrir árið 2019.

Lesa meira

19.12.2018 : Kynning á nýju verklagi Fjármálaeftirlitsins við framkvæmd vettvangsathugana

Fjármálaeftirlitið hefur tekið upp nýtt og endurbætt verklag við framkvæmd vettvangsathugana og var það kynnt á fundi í húsakynnum eftirlitsins hinn 17. desember síðastliðinn. Hægt er að skoða upptöku á kynningunni hér fyrir neðan.

Lesa meira

18.12.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Markel International Insurance Company Limited til Markel Insurance Societas Europaea

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Markel International Insurance Company Limited til Markel Insurance Societas Europaea. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 17. desember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

18.12.2018 : Umræðuskjal um drög að leiðbeinandi tilmælum um hugtakanotkun og skýringar í ársreikningum vátryggingafélaga

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 10/2018 um drög að leiðbeinandi tilmælum um hugtakanotkun og skýringar í ársreikningum vátryggingafélaga.

Lesa meira

18.12.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Travelers Insurance Company Limited til Travelers Insurance DAC

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Travelers Insurance Company Limited til Travelers Insurance DAC. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 17. desember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

18.12.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Domestic & General Insurance Plc til Domestic & General Europe AG

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Domestic & General Insurance Plc til Domestic & General Europe AG. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 12. desember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

17.12.2018 : Íslenskir bankar í evrópskum samanburði

Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (European Banking Authority, EBA) hefur birt í fimmta sinn upplýsingar um rekstur og efnahag 130 banka á Evrópska efnahagssvæðinu. Birtar eru upplýsingar um hvern og einn banka. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn eru í fyrsta sinn með í þessum samanburði.

Lesa meira

11.12.2018 : Nýtt verklag Fjármálaeftirlitsins við framkvæmd vettvangsathugana

Fjármálaeftirlitið hefur sent dreifibréf til eftirlitsskyldra aðila þar sem kynnt er nýtt og endurbætt verklag við framkvæmd vettvangsathugana. Verklagið er í anda þess sem stuðst er við víða í Evrópu og felur m.a. í sér að vettvangsathuganir verða framkvæmdar í meira mæli á starfsstöð eftirlitsskylds aðila og framsetning og eftirfylgni með niðurstöðu vettvangsathugana verður með öðrum hætti en hingað til. 

Lesa meira

10.12.2018 : Gagnatöflur vátryggingafélaga - þriðji ársfjórðungur 2018

Fjármálaeftirlitið hefur hafið ársfjórðungslega birtingu gagnatafla íslenskra vátryggingafélaga á samandregnu formi. Gagnatöflurnar byggja á ársfjórðungslegum gagnaskilum vátryggingafélaga á móðurfélagsgrunni. Þessar fyrstu ársfjórðungslegu gagnatöflur sem birtar eru ná til þriðja ársfjórðungs 2018.  

Lesa meira

30.11.2018 : Fjármálaeftirlitið hvetur fyrirtæki og aðila á fjármálamarkaði til að gæta að netöryggi í starfsemi sinni

Fjármálaeftirlitið hefur í dag sent lífeyrissjóðum dreifibréf þar sem þeir eru hvattir til að gæta að netöryggi í starfsemi sinni. Fjármálaeftirlitið vill jafnframt vara önnur fyrirtæki á fjármálamarkaði við. Sífellt algengara er að fyrirtæki og aðilar á fjármálamarkaði séu skotmörk þar sem reynt er að svíkja út fjármuni. Þau svik fara oft þannig fram að sendir eru póstar í nafni innri aðila þar sem óskað er eftir millifærslu á ákveðinn reikning (e. CEO fraud) eða að brotist er inn í tölvupósthólf starfsmanns til að breyta millifærsluupplýsingum sem berast í tölvupósti.  

Lesa meira

28.11.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Scottish Widows Limited to Scottish Widows Europe S.A. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 27. nóvember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

28.11.2018 : Kröfur varðandi starfsemi lífeyrissjóða

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum vill Fjármálaeftirlitið minna á þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum til starfsemi lífeyrissjóða.

Lesa meira

26.11.2018 : Fræðsluefni gefið út um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Dómsmálaráðuneytið hefur birt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á vef sínum. Um er að ræða tvo bæklinga sem fjalla annars vegar um rannsóknar- og tilkynningarskyldu tilkynningarskyldra aðila og hins vegar um þjálfun starfsmanna.

Lesa meira

26.11.2018 : Tímabundin stöðvun viðskipta – afturköllun

Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Fjármálaeftirlitið hefur nú afturkallað kröfur um tímabundna stöðvun í kjölfar tilkynningar frá félaginu um framgang mála um kaup á Wow air hf. 

Lesa meira

26.11.2018 : Tímabundin stöðvun viðskipta

Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf.

Lesa meira

19.11.2018 : Nýjar reglur um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út nýjar reglur nr. 1001/2018 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja. Leysa þær af hólmi gildandi reglur um sama efni nr. 672/2017 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja. Reglurnar voru samþykktar af stjórn Fjármálaeftirlitsins 17. október sl. og birtar á vef Stjórnartíðinda 15. nóvember.

Lesa meira

13.11.2018 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Travelers Casualty and Surety Company of Europe Limited til Travelers Insurance Company Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 6. nóvember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.

Lesa meira

13.11.2018 : Meðhöndlun innherjaupplýsinga hjá stjórnvöldum

Fjármálaeftirlitið hefur sent dreifibréf til ráðuneyta og tiltekinna stofnana þar sem athygli er vakin á gildandi lögum og reglum sem gilda um meðferð innherjaupplýsinga hjá stjórnvöldum. 

Lesa meira

12.11.2018 : Fjármálaeftirlitið gefur út drög að viðmiðum og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 8/2018. Umræðuskjalið inniheldur drög að uppfærðum viðmiðum og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis (SREP) hjá fjármálafyrirtækjum.  

Lesa meira

6.11.2018 : Lánveitendur fasteignalána til neytenda eru skráningarskyldir

Að undanförnu hefur Fjármálaeftirlitið þurft að bregðast við auglýsingum frá verktökum í byggingariðnaði þar sem kaupendum nýrra íbúða í þeirra eigu er boðið að fjármagna kaup sín með veðtryggðu viðbótarláni frá hlutaðeigandi verktaka.

Lesa meira
Síða 1 af 6






Þetta vefsvæði byggir á Eplica