Þjónustugátt

Rafræn skil

Öll reglubundin skýrsluskil til Fjármálaeftirlitsins fara fram rafrænt í gegnum skýrsluskilakerfi.  Einnig er hægt að beintengja tölvukerfi eftirlitsskyldra aðila við vefþjónustur Fjármálaeftirlitsins og skila gögnum á einfaldan og skilvirkan máta.

Fjármálaeftirlitið sinnir eftirliti með fjármálastarfsemi m.a. með því að afla rafrænna skýrslna frá eftirlitsskyldum aðilum í gegnum skýrsluskilakerfi sem aðgengilegt er öllum eftirlitskyldum aðilum yfir netið.

Rafræn gagnaskil - innskráning (Skýrsluskilakerfi FME)

Forkröfur til að geta keyrt kerfið er Windows stýrikerfi og að hafa .NET Framework 2.0 upp sett á tölvunni.

Leiðbeiningar með skýrsluskilakerfi Fjármálaeftirlitsins er að finna hér undir þjónustugátt og einnig leiðbeiningar fyrir skýrsluskil í gegnum vefþjónustu. Fyrir tæknilega aðstoð varðandi skýrsluskil er hægt að senda þjónustubeiðni á hjalp (hja) fme . is




Language


Útlit síðu: