Fréttir


Fréttir: desember 2012

Fyrirsagnalisti

20.12.2012 : Afgreiðsla Fjármálaeftirlitsins lokuð á aðfangadag og gamlársdag

Afgreiðsla Fjármálaeftirlitsins verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag. Skiptiborðið verður opið milli kl. 9 og 12 báða dagana. Sími Fjármálaeftirlitsins er: 520 3700. Lesa meira

20.12.2012 : Sömu kröfur eru gerðar um hæfi stjórnarmanna og varamanna í stjórn

Að gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið taka fram að stjórnarmaður í lífeyrissjóði sem nýlega var vikið frá störfum á grundvelli ákvörðunar stjórnar Fjármálaeftirlitsins, var ekki hættur sem stjórnarmaður. Viðkomandi hafði hætt sem aðalmaður í stjórn, en sat hins vegar áfram sem varamaður.

Lesa meira

19.12.2012 : Fjórða tölublað Fjármála komið út

Fjórða tölublað, Fjármála, vefrits Fjármálaeftirlitsins, er komið út. Í blaðinu eru fjórar greinar eftir sérfræðinga Fjármálaeftirlitsins.

Lesa meira

18.12.2012 : Fjármálaeftirlitið veitir Öldu sjóðum hf. starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða

Með vísan til 6. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, tilkynnist hér með að Fjármálaeftirlitið veitti þann 14. desember 2012, Öldu sjóðum hf., kt. 560409-0790, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt 7. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Lesa meira

14.12.2012 : Námskeið um sundurliðun fjárfestinga fyrir lífeyrissjóði og vörsluaðila séreignasparnaðar

Fjármálaeftirlitið stendur fyrir námskeiði sem ætlað er fyrir lífeyrissjóði og aðra vörsluaðila séreignasparnaðar. Lesa meira

14.12.2012 : Nýjar reglur um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja ásamt leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlitsins um framkvæmd reglnanna

Þann 7. desember sl. voru nýjar reglur um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja nr. 1050/2012 birtar á vef Stjórnartíðinda. Samhliða birtingu reglnanna hefur Fjármálaeftirlitið gefið út leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2012 um framkvæmd reglnanna. Lesa meira

14.12.2012 : Fjármálaeftirlitið gefur út tvenn drög að leiðbeinandi tilmælum um áhættustýringu lífeyrissjóða og vörsluaðila

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út breytt umræðuskjal nr. 4/2012  og umræðuskjal nr. 14/2012 sem bæði fjalla um áhættustýringu. Hið breytta umræðuskjal nr. 4/2012 eru drög að leiðbeinandi tilmælum um áhættustýringu (eftirlitskerfi) vörsluaðila séreignarsparnaðar. Umræðuskjal nr. 14/2012 er drög að endurútgefnum leiðbeinandi tilmælum um áhættustýringu (eftirlitskerfi) samtryggingardeilda lífeyrissjóða. Hægt er að sjá umræðuskjal nr. 4/2012 hér og umræðuskjal nr. 14/2012 er hér. Lesa meira

14.12.2012 : Fjármálaeftirlitið gefur út umræðuskjal vegna reglna um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum

Fjármálaeftirlitið setur samkvæmt lögum reglur um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum. Á árinu hefur Fjármálaeftirlitið unnið að endurskoðun núgildandi reglna um stórar áhættuskuldbindingar með hliðsjón af þeim breytingum sem innleiðing tilskipunar 2009/111/EB hefur á efni reglnanna. Lesa meira

13.12.2012 : Túlkun varðandi áhættuvog útlána með veði í íbúðar- og viðskiptahúsnæði

Fjármálaeftirlitið sendi fjármálafyrirtækjum dreifibréf, dags. 23. janúar 2012, um túlkun á því hvenær heimilt væri að nota annars vegar 35% áhættuvog um lán tryggð að fullu með veði í  fullbúnu íbúðarhúsnæði og hins vegar 50% áhættuvog um lán tryggð að fullu með veði í viðskiptahúsnæði. Fjármálaeftirlitið hefur nú ákveðið að birta fyrrnefndar túlkanir með smávægilegum breytingum sem snúa að byggingar- og matsstigi íbúðarhúsnæðis. Lesa meira

13.12.2012 : Athugun á Dróma beindist að afmörkuðum atriðum á tilteknu tímabili

Vegna auglýsinga sem birst hafa í dagblöðum undanfarið þar sem nafn Fjármálaeftirlitsins (FME) er notað í fyrirsögn, skal tekið fram að athugun sú sem gerð var vegna tiltekinna ábendinga um viðskiptahætti Dróma ehf., beindist að afmörkuðum atriðum og tilteknu tímabili, eins og glöggt má sjá í gagnsæistilkynningu um athugunina sem birt var 21. nóvember síðastliðinn. Ekki ber að skilja þá niðurstöðu svo að allsherjar heilbrigðisvottorð hafi verið gefið út um starfsemi félagsins eða viðskiptahætti þess. Lesa meira

12.12.2012 : Fjármálaeftirlitið gefur út leiðbeinandi tilmæli um upplýsingakerfi eftirlitsskyldra aðila

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út leiðbeinandi tilmæli nr. 1/2012 um upplýsingakerfi eftirlitsskyldra aðila. Í umsagnarferli tilmælanna bárust u.þ.b. 84 athugasemdir frá mismunandi aðilum og var fallist á u.þ.b. 41 þeirra í heild eða að hluta. Í kjölfar yfirferðar athugasemdanna voru uppfærð drög að tilmælunum lögð fyrir stjórn Fjármálaeftirlitsins þann 28. nóvember sl. og samþykkt þar sem leiðbeinandi tilmæli um rekstur upplýsingakerfa nr. 1/2012. Tilmælin hafa nú verið birt á heimasíðu FME og má sjá þau hér. Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica