Fréttir


Fréttir: janúar 2016

Fyrirsagnalisti

29.1.2016 : Fausto Parente ráðinn framkvæmdastjóri EIOPA

Stjórn Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar (EIOPA) hefur samþykkt að ráða Fausto Parente í starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Hann var áður yfirmaður eftirlits, reglusetningar og stefnumótunar hjá ítalska vátryggingaeftirlitinu, Istituto di Vigilanza sulle Assicurazioni (IVASS), 

Lesa meira

28.1.2016 : Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II

Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II, verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar nk. kl. 9:00 í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins að Katrínartúni 2, þriðju hæð. Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum vátryggingafélaganna, ytri og innri endurskoðendum þeirra, sem og öðrum sem áhuga kunna að hafa.

Lesa meira

26.1.2016 : Afturköllun staðfestingar verðbréfasjóðsins Virðing Ríkisbréf – millilangur

Með vísan til 9. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, tilkynnist hér með að Fjármálaeftirlitið hefur þann 26. janúar 2016 afturkallað staðfestingu verðbréfasjóðsins Virðing Ríkisbréf - millilangur, sem starfræktur var af Rekstrarfélagi Virðingar hf., kt. 531109-2790, Borgartúni 29, 105 Reykjavík.

Lesa meira

26.1.2016 : Tilmæli fjármálastöðugleikaráðs um beitingu eiginfjárauka

Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu var haldinn 22. janúar 2016. Eftirfarandi tilmælum var beint til Fjármálaeftirlitsins.

Lesa meira

22.1.2016 : Dreifibréf um ráðstafanir til úrbóta á grundvelli 43. gr. laga nr. 128/2011

Fjármálaeftirlitið sendi hinn 11. janúar 2016 dreifibréf til rekstrarfélaga verðbréfasjóða . Í dreifibréfinu, sem sent var í framhaldi af dreifibréfi Fjármálaeftirlitsins hinn 4. desember 2015, voru nánari skýringar veittar varðandi  þær reglur sem gilda um ráðstafanir til úrbóta fari fjárfesting verðbréfa- eða fjárfestingarsjóðs fram úr leyfilegum mörkum sbr. 43. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.

Lesa meira

20.1.2016 : Niðurstaða athugunar á notkun PC Crash skýrslna hjá vátryggingafélögum

Fjármálaeftirlitið ákvað að hefja athugun á notkun vátryggingafélaga á svonefndum PC Crash skýrslum í skaðabótamálum. Var það gert á grundvelli 1. mgr. 9. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í þessu skyni óskaði Fjármálaeftirlitið eftir upplýsingum og viðeigandi gögnum frá vátryggingafélögum um notkun PC Crash skýrslna ásamt almennum sjónarmiðum vátryggingafélaganna og afstöðu til notkunar skýrslnanna.

Lesa meira

19.1.2016 : Reglur um hámarksútgreiðslufjárhæð og takmarkanir á útgreiðslum fjármálafyrirtækja vegna eiginfjárauka

Fjármálaeftirlitið hefur sett reglur um hámarksútgreiðslufjárhæð og takmarkanir á útgreiðslum fjármálafyrirtækja vegna eiginfjárauka , sbr. 7. mgr. 84. gr. a laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Reglurnar hafa verið samþykktar af stjórn Fjármálaeftirlitsins og birtar í Stjórnartíðindum. Reglurnar fjalla um það hvernig útgreiðslur fjármálafyrirtækja, s.s. arðgreiðslur eða kaupaukar, takmarkast ef fjármálafyrirtæki heldur ekki nægu eigin fé vegna eiginfjárauka.

Lesa meira

19.1.2016 : Umfjöllun um BRRD á vef Fjármálaeftirlitsins

Fjármálaeftirlitið hefur birt umfjöllun um tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð fjármálafyrirtækja (e. Bank Recovery and Resolution Directive) á vef sínum. Tilskipunin, sem oftast er nefnd BRRD, tók gildi innan Evrópusambandsins þann 1. janúar 2015.

Lesa meira

18.1.2016 : Niðurstaða athugunar á sölu Arion banka hf. á hlutabréfum í Símanum hf.

Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi skal Fjármálaeftirlitið fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.

Lesa meira

18.1.2016 : Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II

Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II, verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar nk. kl. 9:00 í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins að Katrínartúni 2, þriðju hæð. Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum vátryggingafélaganna, ytri og innri endurskoðendum þeirra, sem og öðrum sem áhuga kunna að hafa.

Lesa meira

14.1.2016 : Gagnaskilakerfi (skýrsluskilakerfi) FME verður lokað frá kl. 8:00 15. janúar n.k.

Vegna viðhalds verður gagnaskilakerfi (skýrsluskilakerfi) FME lokað frá kl. 8:00 15. janúar n.k. Stefnt er að því að opna kerfið eigi síðar en 18. janúar kl. 9:00. Þeim tilmælum er beint til notenda að vera vakandi fyrir villum eftir opnun kerfisins og senda ábendingu á hjalp@fme.is ef vart verður við eitthvað óvenjulegt. Notendur eru beðnir um að sýna biðlund á meðan á viðhaldi stendur.

Lesa meira

11.1.2016 : Sænes ehf. og Grýtubakkahreppur hæfir til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga

 Hinn 8. janúar  sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Sænes ehf. sé hæft til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga sem nemur allt að 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Lesa meira

8.1.2016 : Fjármálaeftirlitið hefur metið BLM Investment ehf. og tengda aðila hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Lýsingu hf.

Hinn 30. desember sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að BLM Investment ehf., kt. 460813-1820, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf. sem nemur allt að 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki (fftl.) í gegnum eignarhald sitt í móðurfélagi Lýsingar hf, Klakka ehf. Auk þess hefur Fjármálaeftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að móðurfélag BLM Investment ehf., Burlington Loan Management Ltd. sem átti fyrir 13,2% hlut í Klakka ehf., auk tengdra aðila, Deutsche International Finance (Ireland) Limited og Davidson Kempner Capital Management LP, séu hæf til að fara með allt að 50% virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf.

Lesa meira

4.1.2016 : Solvency II hefur tekið gildi

Evrópska vátrygginga- og lífeyriseftirlitið (EIOPA) hefur birt fréttatilkynningu á vef sínum þar sem sagt er frá því að Solvency II, sem er nýtt regluverk á vátryggingamarkaði, hafi tekið gildi. Á vef EIOPA hefur einnig verið opnað nýtt svæði þar sem Solvency II er útskýrt fyrir leikmönnum.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica