Útgefið efni

Fyrirsagnalisti

22.12.2006 : Rafræn skýrsluskil til Fjármálaeftirlitsins

Frá og með ársbyrjun 2007 hyggst Fjármálaeftirlitið breyta fyrirkomulagi reglubundinna skýrsluskila.

22.12.2006 : Breyting á leiðbeinandi tilmælum um starfsreglur stjórna

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að gera breytingu á skilgreiningu á vensluðum aðilum sem fram kemur í leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2006, um efni starfsreglna stjórna fjármálafyrirtækja.

15.12.2006 : Umræðuskjal: Viðmiðunarreglur til að efla samræmi í eftirlitsaðgerðum

Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 5/2006. Umræðuskjalið hefur að geyma drög að leiðbeinandi tilmælum um viðmiðunarreglur til að efla samræmi í eftirlitsaðferðum.

15.12.2006 : FME: Eftirlitsferlar styrktir í nýjum alþjóðlegum reglum

Í ársbyrjun 2007 taka nýjar alþjóðlegar reglur um eigið fé fjármálafyrirtækja gildi. Reglurnar byggja á staðli frá Baselnefndinni um bankaeftirlit, svonefndum Basel II staðli.

15.12.2006 : FME: Samstarfssamningur við fjármálaeftirlitið á Mön

Fjármálaeftirlitið undirritaði á mánudaginn samstarfssamning við fjármálaeftirlitið á Mön

10.12.2006 : Vanskil útlána hjá innlánsstofnun í lok 2. ársfjórðungs 2006

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok júní 2006 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

10.12.2006 : Vanskil útlána hjá innlánsstofnun í lok 1. ársfjórðungs 2006

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2006 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

10.12.2006 : Umræðuskjal nr. 4/2006: Drög að reglum um eiginfjárkröfur og áhættugrunn fjármálafyrirtækja

Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 4/2006 . Umræðuskjalið hefur að geyma drög að reglum um eiginfjárkröfu og áhættugrunn fjármálafyrirtækja.

10.12.2006 : Umræðuskjal nr. 2/2006 um starfsreglur stjórna fjármálafyrirtækja

Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 2/2006 . Umræðuskjalið hefur að geyma endurskoðun leiðbeinandi tilmæla nr. 1/2003 um efni starfsreglna stjórna fjármálafyrirtækja.

10.12.2006 : Tilkynning: CESR kallar eftir áliti markaðsaðila

Samtök evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) birti 13. nóvember síðastliðinn skjal sem ber heitið: Call for evidence on the supervisory functioning of the prospectus directive and regulation.

10.12.2006 : Starfsleyfi lánafyrirtækis

rmálaeftirlitið hefur veitt Sjóvá fjármögnun hf. starfsleyfi sem lánafyrirtæki, skv. 3. tl. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

10.12.2006 : Skýrsla FME um ársreikninga fjármálafyrirtækja árið 2005

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með ársreikningum ársins 2005 og ýmsum samandregnum upplýsingum úr ársreikningum fyrir viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki (einu nafni lánastofnanir), verðbréfafyrirtæki og verðbréfamiðlanir og rekstrarfélög verðbréfasjóða ásamt verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum.

10.12.2006 : Skil á skýrslu fyrir árið 2005 um tryggingafræðilega athugun á lífeyrissjóði.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða skal stjórn lífeyrissjóðs láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins í samræmi við 39. gr. laganna og ákvæði reglugerðar nr. 391/1998.

10.12.2006 : Samþykki á kaupum Klinks ehf. á virkum eignarhlut í Verði Íslandstryggingu hf.

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt að Klink ehf. eignist allt hlutafé í Verði Íslandstryggingu hf.

10.12.2006 : Nýtt skipurit FME

Starfsemi Fjármálaeftirlitsins skiptist í fjögur verkefnasvið auk stoðþjónustu, samkvæmt nýju skipuriti sem stjórn FME hefur samþykkt og tók gildi þann 5. september.

10.12.2006 : Leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2006

Fjármálaeftirlitið hefur þann 30. mars 2006 sett leiðbeinandi tilmæli um afleiðunotkun verðbréfasjóða.

10.12.2006 : Frétt: Út er komin skýrsla Fjármálaeftirlitsins með ársreikningum lífeyrissjóða fyrir árið 2005

Fjármálaeftirlitið hefur nú sett á heimasíðu sína skýrslu um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir árið 2005 auk talnaefnis.

10.12.2006 : Frétt: Túlkun á ákvæðum 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er lúta að starfsheimildum lífeyrissjóða vegna innheimtu lífeyrissjóða á stéttarfélagaiðgjöldum.

Fjármálaeftirlitið hefur í dag birt á heimasíðu sinni (undir lífeyrismarkaður) túlkun á ákvæðum 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 129/1997.

10.12.2006 : Frétt: Nýjar reglugerðir hafa tekið gildi.

Fjármálaeftirlitið vill vekja athygli á því að nýjar reglugerðir hafa tekið gildi er snúa að almennum útboðum verðbréfa og skráningu verðbréfa á skipulegan verðbréfamarkað.

10.12.2006 : Frétt: Ný umræðuskjöl frá CEIOPS

CEIOPS (Committee of European Insurance and Occupational Pension Supervisors) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi umræðuskjöl:

10.12.2006 : Frétt: Niðurstaða af áhrifum álagsprófa á eiginfjárhlutföll stærstu bankanna miðað við árshlutauppgjör í lok júní 2006

Fjarmálaeftirlitið hefur reiknað út áhrif af álagsprófi í samræmi við ákvæði reglna nr. 530/2004 með áorðnum breytingum.

10.12.2006 : Frétt: Leiðbeiningar CEBS um Basel II málefni.

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á að Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á lánamarkaði (Committee of European Banking Supervisors, CEBS) hefur lokið umfjöllun um þrjú umræðuskjöl sem varða innleiðingu Basel II staðalsins um eigið fé fjármálafyrirtækja með því að gefa út leiðbeiningar um þessi efni:

10.12.2006 : CESR birtir skjöl á heimasíðu sinni

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR (The Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi skjöl

10.12.2006 : Frétt: Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR (Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi skjöl:

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR (Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi skjöl:

10.12.2006 : Frétt: Fjármálaeftirlitið óskar eftir þátttöku vátryggingafélaga í könnun áhrifa Solvency II (QIS)

Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á vátryggingasviði (CEIOPS) stendur nú að annarri umferð könnunar á mögulegum áhrifum nýs gjaldþols- og eftirlitsstaðals (Solvency II) sem nú er unnið að á EES. Könnunin gengur undir nafninu QIS (Quantitative Impact Study).

10.12.2006 : Frétt: Fjármálaeftirlitið leitar til dómstóla vegna niðurstöðu kærunefndar skv. lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, nr. 4/2006 um birtingu á viðskiptum félags með eigin bréf.

Þann 27. júní 2006 í máli nr. 4/2006 komst Kærunefnd skv. lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998 að þeirri niðurstöðu að viðskipti útgefenda með eigin bréf, sem skráð hafa verið í Kauphöll Íslands, falli ekki undir birtingarskyld viðskipti skv. 64. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti (vvl).

10.12.2006 : Frétt: Fjármálaeftirlitið kynnir Umræðuskjal nr. 3/2006 um tillögu að breytingu á reglum um eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.

Tillagan felur í sér breytingu á meðferð framvirkra samninga um hlutabréfakaup í mati á áhættugrunni við útreikning á eiginfjárhlutfalli fjármálafyrirtækja nr. 530/2003.

10.12.2006 : Frétt: Fjármálaeftirlitið gefur út leiðbeinandi tilmæli um álagspróf vátryggingafélaga og upplýsingagjöf um áhættustýringu, þ.á m. álagspróf

Í framhaldi af birtingu umræðuskjals nr. 3/2005, hefur Fjármálaeftirlitið nú gefið út Leiðbeinandi tilmæli nr. 1/2006. Fjármálaeftirlitið telur mikilvægt að styrkja áhættustýringu vátryggingafélaga og efla eftirlit með henni í ljósi m.a.:

10.12.2006 : Frétt: Exista hf.

Þann 30. ágúst 2006 veitti Fjármálaeftirlitið Exista hf., heimild, til þess að fara með virka eignarhluti í Vátryggingafélagi Íslands hf.

10.12.2006 : Frétt: Dreifibréf varðandi upplýsingaöflun við töku persónutrygginga og 82. gr. laga um vátryggingarsamninga.

Fjármálaeftirlitið hefur birt á heimasíðu sinni (undir túlkanir á vátryggingamarkaði) dreifibréf, dags. 15. mars 2006, varðandi heimild til upplýsingaöflunar við töku persónutrygginga og 82. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga

10.12.2006 : Frétt: CEIOPS hefur birt á heimasíðu sinni umræðuskjöl er varðar Solvency II

CEIOPS (Committee of European Insurance and Occupational Pension Supervisors) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi umræðuskjöl er varðar Solvency II

10.12.2006 : Frétt: Athugun á yfirtökuskyldu í FL Group hf.

Fjármálaeftirlitið hefur haft til athugunar hvort yfirtökuskylda hafi stofnast í FL Group hf. í skilningi 37. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti.

10.12.2006 : Frétt frá Fjármálaeftirlitinu: Álagspróf Fjármálaeftirlitsins

Í frétt frá Fjármálaeftirlitinu sem birt var á heimasíðu þess 14. mars 2006 var gerð grein fyrir breytingum á reglum um viðmið við ákvörðun um hærra eiginfjárhlutfall fyrir fjármálafyrirtæki, nr. 530/2004, sbr. breytingarreglurnar nr. 177/2006. Í umfjölluninni um breytingarnar kom fram að samkvæmt álagsprófinu hefðu allir viðskiptabankarnir staðist það m.v. sl. áramót.

10.12.2006 : FME: Úrskurði Kærunefndar hnekkt

Fjármálaeftirlitið hefur gert dómsátt í máli sem það höfðaði til ógildingar á úrskurði Kærunefndar í máli nr. 4/2006.

10.12.2006 : FME: Skýrar starfsreglur stjórna fjármálafyrirtækja efla traust íslensks fjármálamarkaðar

Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um að fjármálafyrirtæki leggi fyrir ytri endurskoðanda að fara yfir fyrirgreiðslur til venslaðra aðila og bera saman við sambærileg viðskipti annarra viðskiptavina.

10.12.2006 : FME: Samræming á beitingu löggjafar um markaðssvik innan EES

FME hefur að undanförnu tekið þátt í vinnu á vettvangi Samtaka evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) við mótun leiðbeininga um túlkun og beitingu tiltekinna ákvæða í tilskipun Evrópusambandsins um markaðssvik nr. 2003/6/EC (MAD).

10.12.2006 : FME: Mikilvægt að vátryggingamiðlarar og umboðsmenn vátrygginga gæti að upplýsingaskyldu sinni

Skyldur og ábyrgð vátryggingamiðlara og umboðsmanna vátrygginga var meðal þess sem rætt var á fundi Fjármálaeftirlitsins með fulltrúum eftirlitsskyldra aðila á tryggingamarkaði sem haldinn var í húsakynnum FME í dag.

10.12.2006 : FME: Innherjalistar verða rafrænir

Um fjörtíu regluverðir og tölvusérfræðingar frá skráðum félögum og útgefendum hlutabréfa í Kauphöll sóttu námskeið FME um rafvæðingu innherjalista og regluvörslu sem fram fór í húsakynnum FME mánudaginn 27. nóvember.

10.12.2006 : FME: Vanskil í lágmarki, en þokast upp á við

Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnanna var tæplega 0,7% í lok þriðja árfjórðungs 2006, sem er lítillega hærra en það var í lok næstu ársfjórðunga á undan, en þá var þetta hlutfall um 0,6%. Í lok 3. ársfjórðungs 2005 var hlutfallið 0,9% og hafði þá ekki verið lægra frá árslokum 2000.

10.12.2006 : FME birtir úttektir á regluvörslu Marel hf og P/F Atlantic Petrolium

Fjármálaeftirlitið hefur á þessu ári gert reglubundnar úttektir á framkvæmd reglna um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipta innherja hjá tveimur félögum sem skráð eru í Kauphöll, en það eru Marel hf. annarsvegar og Atlantic Petrolium hinsvegar. Þessar úttektir eru nú birtar á heimasíðu FME.

10.12.2006 : FME aðili að samstarfsverkefni um smíði rafræns tilkynningakerfis

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að gerast aðili að Norrænu samstarfsverkefni um smíði rafræns tilkynningakerfis samkvæmt 25. gr. MiFID (tilskipun Evrópusambandsins um markaði með fjármálagerninga).

10.12.2006 : Fjármálaeftirlitið höfðar dómsmál vegna myndunar virks eignarhlutar

Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur ákveðið að höfða dómsmál til að fá ógilta úrskurði kærunefndar frá júli/ágúst 2006, þess efnis að eftirlitinu hafi verið óheimilt að takmarka atkvæðisrétt ákveðinna einstaklinga í Sparisjóði Hafnarfjarðar við 5%.

10.12.2006 : Fjármálaeftirlitið hefur þann 27. apríl 2006 veitt Samson Global Holdings, heimild til þess að fara með virkan eignarhlut yfir 20% í Straumi – Burðarási fjárfestingarbanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur þann 27. apríl 2006 veitt Samson Global Holdings, heimild til þess að fara með virkan eignarhlut yfir 20% í Straumi – Burðarási fjárfestingarbanka hf. í samræmi við VI. kafla laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

7.12.2006 : Fjármálaeftirlitið gefur út umræðuskjal um hvernig meðhöndla eigi áhrif breytinga á skulda- og eiginfjárliðum vátryggingafélaga við upptöku alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS)

Fjármálaeftirlitið birtir hér með til umsagnar umræðuskjal nr. 1/2006 sem eru drög að leiðbeinandi tilmælum um hvernig meðhöndla eigi áhrif breytinga á skulda- og eiginfjárliðum vátryggingafélaga við upptöku alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS). Umsagnarfrestur er til 15. mars nk.

7.12.2006 : Fjármálaeftirlitið birtir upplýsingar um iðgjöld erlendra vátryggingafélaga á Íslandi 2001-2004

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölulegar upplýsingar um starfsemi erlendra vátryggingafélaga á Evrópska efnahagssvæðinu sem heimild hafa til starfsemi á Íslandi á grundvelli VII. kafla laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi.

7.12.2006 : Ársfundur FME: Fjallað um þróun og horfur á fjármálamörkuðum

Þróun og horfur á fjármálamörkuðum er meðal þess sem fjallað verður um á ársfundi Fjármálaeftirlitsins sem fer fram þriðjudaginn 7. nóvember, kl. 16.00 í Salnum, Kópavogi.

7.12.2006 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2006

Þriðjudaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 16:00 mun Fjármálaeftirlitið halda ársfund. Fundarstaður: Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs.




Language


Útlit síðu: