Fréttir


Fréttir: nóvember 2007

Fyrirsagnalisti

29.11.2007 : CESR: Umræðuskjal um upplýsingagjöf verðbréfasjóða

Fjármálaeftirlitið vekur athygli fjárfesta á því að CESR (The Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni umræðuskjal sem lýtur að innihaldi og framsetningu upplýsingaskjals um verðbréfasjóði.

Lesa meira

27.11.2007 : Fjölmenni á ársfundi FME

Fjölmenni sótti ársfund Fjármálaeftirlitsins sem fór fram á Hilton Hotel Nordica í dag, þriðjudag. Á fundinum var fjallað um þróun og horfur á fjármálamörkuðum.

Lesa meira

23.11.2007 : Meirihluti innlána bankanna í eigu erlendra aðila

Hlutfall innlána af útlánum hefur hækkað úr u.þ.b. 31% árið 2005 í 52% um mitt ár 2007. Athygli vekur að meirihluti innlána íslenskra innlánsstofnana koma frá erlendum aðilum.

Lesa meira

21.11.2007 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2007

Þróun og horfur á íslenskum fjármálamarkaði og áherslur Fjármálaeftirlitsins verða til umræðu á ársfundi FME þann 27. nóvember nk. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavik Nordica og hefst kl. 16:30. Lesa meira

19.11.2007 : Útlán til venslaðra aðila um 7,2% af heildarútlánum viðskiptabankanna og stærstu sparisjóða.

Á miðju ári 2007 námu heildarútlán til venslaðra aðila hjá viðskiptabönkunum og stærstu sparisjóðum 7,2% af heildarútlánum þeirra til viðskiptavina en sambærilegt hlutfall var 6,5% á sama tíma á árinu 2006. Fjármálaeftirlitið kallar reglulega eftir upplýsingum um fyrirgreiðslu til venslaðra aðila.

Lesa meira

15.11.2007 : FME: 44 aðilar í hæfismat

Samtals 44 aðilar úr íslenskum fjármálaheimi hafa farið í gegnum hæfismat Fjármálaeftirlitsins frá því í nóvember 2005 en þá hóf FME að prófa alla nýja framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga, auk vátryggingamiðlara.

Lesa meira

15.11.2007 : Samruni sparisjóða

Fjármálaeftirlitið veitti þann 14. nóvember sl., samþykki fyrir samruna Sparisjóðs Kópavogs við BYR sparisjóð á grundvelli 106. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Lesa meira

13.11.2007 : FME gerir ekki athugasemdir við óbeint eignarhald Borse Dubai á OMX Nordic Exchange

Þann 12. nóvember sl. tilkynnti Fjármálaeftirlitið Borse Dubai að eftirlitið geri ekki athugasemdir við óbeint eignarhald fyrirtækisins á OMX Nordic Exchange á Íslandi og Verðbréfaskráningu Íslands Lesa meira

9.11.2007 : Umfang útlána með veði í íbúðarhúsnæði aukast á milli ára

Frá því að bankar og sparisjóðir komu inn á húsnæðislánamarkaðinn hefur umfang útlána með veði í íbúðarhúsnæði vaxið hratt. Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman yfirlit yfir þróun útlána með veði í íbúðarhúsnæði.

Lesa meira

7.11.2007 : Nýjar reglur um opinbera fjárfestingaráðgjöf

Fjármálaeftirlitið hefur sett reglur um opinbera fjárfestingaráðgjöf sem tekur til aðila sem vinna að eða dreifa slíkri ráðgjöf. Reglurnar efla gegnsæi og trúverðugleika fjárfestingaráðgjafar og er fjárfestum til hagsbóta að sögn forstjóra FME.

Lesa meira

1.11.2007 : Leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 1/2001 fallin úr gildi

Með gildistöku reglugerðar nr. 995/2007 eru leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins nr. 1/2001, um efni reglna fjármálafyrirtækja samkvæmt 15., 20. og 23. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti, fallin úr gildi. Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica