Fréttir


Fréttir: maí 2019

Fyrirsagnalisti

28.5.2019 : Fyrirtæki frá Hong Kong býður þjónustu án leyfis

Fjármálaeftirlitinu hefur borist ábending um að fulltrúar félagsins Midway Management, sem gefur sig út fyrir að bjóða upp á ýmiss konar fjárfestingarþjónustu í Hong Kong, hafi að undanförnu sett sig í samband við Íslendinga í þeim tilgangi að selja bandarísk hlutabréf. Fjármálaeftirlitið vekur sérstaka athygli á því að félagið hefur ekki leyfi til að bjóða upp á þessa þjónustu hér á landi.

Lesa meira

23.5.2019 : Gagnatöflur vátryggingafélaga - fyrsti ársfjórðungur 2019

Fjármálaeftirlitið hefur birt gagnatöflur íslenskra vátryggingafélaga á samandregnu formi fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 Gagnatöflurnar byggja á ársfjórðungslegum gagnaskilum vátryggingafélaga á móðurfélagsgrunni

Lesa meira

20.5.2019 : Nýtt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Dómsmálaráðuneytið hefur birt nýtt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og uppfært áður útgefið efni. 

Lesa meira

17.5.2019 : Fjármálaeftirlitið birtir fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti á verðbréfamarkaði

Fjármálaeftirlitið hefur birt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á verðbréfa- og sjóðamarkaði. Í síðasta mánuði var birt sambærilegt fræðsluefni annars vegar um váþætti á bankamarkaði og hins vegar um áhættuþætti á líftryggingamarkaði.

Lesa meira

16.5.2019 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2019 – vefútsending

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins verður haldinn í dag klukkan 15:00 í Norðurljósum í Hörpu og verður honum streymt.

Lesa meira

14.5.2019 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2019 verður haldinn 16. maí kl. 15:00 í Norðurljósum í Hörpu

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2019 verður haldinn þann 16. maí næstkomandi. Fundurinn fer fram í Norðurljósum í Hörpu og hefst klukkan 15:00.

Lesa meira

9.5.2019 : Aðgerðir Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til að hindra peningaþvætti

Æðstu stjórnendur fjármálaeftirlita Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna funduðu í gær í Stokkhólmi og komu sér saman um ráðstafanir til að auka samstarf ríkjanna í því skyni að hindra peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Fjármálaeftirlitið átti ekki fulltrúa á fundinum að þessu sinni en tekur fullan þátt í samstarfinu og fylgdist með fundinum og þeim ákvörðunum sem þar voru teknar.

Lesa meira

9.5.2019 : Sundurliðun fjárfestinga samtryggingar og séreignar fyrir fyrsta ársfjórðung 2019

Fjármálaeftirlitið hefur birt upplýsingar um fjárfestingar samtrygginga- og séreignadeilda lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila séreignasparnaðar fyrir 1. ársfjórðung 2019 ásamt sambærilegum gögnum er ná aftur til 3. ársfjórðungs 2017. Hér er einnig stutt samantekt þeirra upplýsinga sem þar er að finna.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica