Fréttir


Fréttir: maí 2015

Fyrirsagnalisti

29.5.2015 : Fjármálaeftirlitið birtir ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum

Fjármálaeftirlitið hefur birt ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum fyrir reikningsárið 2014 með samræmdri uppsetningu. Birtir eru rekstrar- og efnahagsreikningar, ásamt sjóðsstreymi. Í þeim tilvikum sem vátryggingafélag er hluti af samstæðu eru birtir móðurfélagsreikningar.

Lesa meira

28.5.2015 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2015 er í dag

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins er haldinn í sal A&B á Hilton Reykjavík Nordica í dag 28. maí og hefst fundurinn klukkan 15:00 síðdegis. Á fundinum er Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2015 kynnt.

Lesa meira

27.5.2015 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2015

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins verður haldinn í sal A&B á Hilton Reykjavík Nordica á morgun 28. maí og hefst fundurinn klukkan 15:00 síðdegis. Á fundinum verður Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2015 kynnt. Lesa meira

18.5.2015 : Fjármálaeftirlitið gefur út umræðuskjal með drögum að reglum um ársreikninga verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 4/2015. Skjalið inniheldur drög að reglum um ársreikninga verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða. Jafnframt hefur verið sent út dreifibréf þar sem viðtakendum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við drögin. Skjölin eru birt á vefsíðu eftirlitsins, http://www.fme.is/log-og-tilmaeli/umraeduskjol/. Lesa meira

5.5.2015 : Sameiginleg yfirlýsing Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands vegna birtingar á trúnaðarupplýsingum í ritinu Fjármálastöðugleiki

Í ritinu Fjármálastöðugleiki, sem Seðlabanki Íslands gaf út hinn 22. apríl 2015, birtust upplýsingar um ársreikning Sparisjóðs Norðurlands fyrir árið 2014 sem ekki voru orðnar opinberar. Við útgáfu ritsins er þeirri reglu fylgt að upplýsingar er varða einstaka aðila séu einungis birtar hafi þær þegar verið gerðar opinberar eða leyfi fengist fyrir birtingunni hjá viðkomandi aðila. Birting upplýsinganna voru því mistök sem  stofnanirnar harma, enda leggja þær ríka áherslu á vandaða meðferð gagna frá eftirlitsskyldum aðilum sem stofnanirnar hafa fengið afhentar í trúnaði. Til þess að fyrirbyggja að slík mistök eigi sér stað í framtíðinni munu stofnanirnar í sameiningu fara yfir og gera viðeigandi endurbætur á verkferlum.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica