Frá og með ársbyrjun 2007 hyggst Fjármálaeftirlitið breyta fyrirkomulagi reglubundinna skýrsluskila.
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að gera breytingu á skilgreiningu á vensluðum aðilum sem fram kemur í leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2006, um efni starfsreglna stjórna fjármálafyrirtækja.
Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 5/2006. Umræðuskjalið hefur að geyma drög að leiðbeinandi tilmælum um viðmiðunarreglur til að efla samræmi í eftirlitsaðferðum.
Í ársbyrjun 2007 taka nýjar alþjóðlegar reglur um eigið fé fjármálafyrirtækja gildi. Reglurnar byggja á staðli frá Baselnefndinni um bankaeftirlit, svonefndum Basel II staðli.
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok júní 2006 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.
Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 4/2006 . Umræðuskjalið hefur að geyma drög að reglum um eiginfjárkröfu og áhættugrunn fjármálafyrirtækja.
Fjármálaeftirlitið birtir til umsagnar Umræðuskjal nr. 2/2006 . Umræðuskjalið hefur að geyma endurskoðun leiðbeinandi tilmæla nr. 1/2003 um efni starfsreglna stjórna fjármálafyrirtækja.
Samtök evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) birti 13. nóvember síðastliðinn skjal sem ber heitið: Call for evidence on the supervisory functioning of the prospectus directive and regulation.
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með ársreikningum ársins 2005 og ýmsum samandregnum upplýsingum úr ársreikningum fyrir viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki (einu nafni lánastofnanir), verðbréfafyrirtæki og verðbréfamiðlanir og rekstrarfélög verðbréfasjóða ásamt verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum.
Samkvæmt 24. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða skal stjórn lífeyrissjóðs láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins í samræmi við 39. gr. laganna og ákvæði reglugerðar nr. 391/1998.
Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt að Klink ehf. eignist allt hlutafé í Verði Íslandstryggingu hf.
Starfsemi Fjármálaeftirlitsins skiptist í fjögur verkefnasvið auk stoðþjónustu, samkvæmt nýju skipuriti sem stjórn FME hefur samþykkt og tók gildi þann 5. september.
Fjármálaeftirlitið hefur þann 30. mars 2006 sett leiðbeinandi tilmæli um afleiðunotkun verðbréfasjóða.
Fjármálaeftirlitið hefur nú sett á heimasíðu sína skýrslu um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir árið 2005 auk talnaefnis.
Fjármálaeftirlitið hefur í dag birt á heimasíðu sinni (undir lífeyrismarkaður) túlkun á ákvæðum 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 129/1997.
CEIOPS (Committee of European Insurance and Occupational Pension Supervisors) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi umræðuskjöl:
Fjarmálaeftirlitið hefur reiknað út áhrif af álagsprófi í samræmi við ákvæði reglna nr. 530/2004 með áorðnum breytingum.
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á að Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á lánamarkaði (Committee of European Banking Supervisors, CEBS) hefur lokið umfjöllun um þrjú umræðuskjöl sem varða innleiðingu Basel II staðalsins um eigið fé fjármálafyrirtækja með því að gefa út leiðbeiningar um þessi efni:
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR (The Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi skjöl
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á því að CESR (Committee of European Securities Regulators) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi skjöl:
Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á vátryggingasviði (CEIOPS) stendur nú að annarri umferð könnunar á mögulegum áhrifum nýs gjaldþols- og eftirlitsstaðals (Solvency II) sem nú er unnið að á EES. Könnunin gengur undir nafninu QIS (Quantitative Impact Study).
Þann 27. júní 2006 í máli nr. 4/2006 komst Kærunefnd skv. lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998 að þeirri niðurstöðu að viðskipti útgefenda með eigin bréf, sem skráð hafa verið í Kauphöll Íslands, falli ekki undir birtingarskyld viðskipti skv. 64. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti (vvl).
Tillagan felur í sér breytingu á meðferð framvirkra samninga um hlutabréfakaup í mati á áhættugrunni við útreikning á eiginfjárhlutfalli fjármálafyrirtækja nr. 530/2003.
Í framhaldi af birtingu umræðuskjals nr. 3/2005, hefur Fjármálaeftirlitið nú gefið út Leiðbeinandi tilmæli nr. 1/2006. Fjármálaeftirlitið telur mikilvægt að styrkja áhættustýringu vátryggingafélaga og efla eftirlit með henni í ljósi m.a.:
Fjármálaeftirlitið hefur birt á heimasíðu sinni (undir túlkanir á vátryggingamarkaði) dreifibréf, dags. 15. mars 2006, varðandi heimild til upplýsingaöflunar við töku persónutrygginga og 82. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga
CEIOPS (Committee of European Insurance and Occupational Pension Supervisors) hefur birt á heimasíðu sinni eftirfarandi umræðuskjöl er varðar Solvency II
Fjármálaeftirlitið hefur haft til athugunar hvort yfirtökuskylda hafi stofnast í FL Group hf. í skilningi 37. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti.
Í frétt frá Fjármálaeftirlitinu sem birt var á heimasíðu þess 14. mars 2006 var gerð grein fyrir breytingum á reglum um viðmið við ákvörðun um hærra eiginfjárhlutfall fyrir fjármálafyrirtæki, nr. 530/2004, sbr. breytingarreglurnar nr. 177/2006. Í umfjölluninni um breytingarnar kom fram að samkvæmt álagsprófinu hefðu allir viðskiptabankarnir staðist það m.v. sl. áramót.
Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um að fjármálafyrirtæki leggi fyrir ytri endurskoðanda að fara yfir fyrirgreiðslur til venslaðra aðila og bera saman við sambærileg viðskipti annarra viðskiptavina.
FME hefur að undanförnu tekið þátt í vinnu á vettvangi Samtaka evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) við mótun leiðbeininga um túlkun og beitingu tiltekinna ákvæða í tilskipun Evrópusambandsins um markaðssvik nr. 2003/6/EC (MAD).
Skyldur og ábyrgð vátryggingamiðlara og umboðsmanna vátrygginga var meðal þess sem rætt var á fundi Fjármálaeftirlitsins með fulltrúum eftirlitsskyldra aðila á tryggingamarkaði sem haldinn var í húsakynnum FME í dag.
Um fjörtíu regluverðir og tölvusérfræðingar frá skráðum félögum og útgefendum hlutabréfa í Kauphöll sóttu námskeið FME um rafvæðingu innherjalista og regluvörslu sem fram fór í húsakynnum FME mánudaginn 27. nóvember.
Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnanna var tæplega 0,7% í lok þriðja árfjórðungs 2006, sem er lítillega hærra en það var í lok næstu ársfjórðunga á undan, en þá var þetta hlutfall um 0,6%. Í lok 3. ársfjórðungs 2005 var hlutfallið 0,9% og hafði þá ekki verið lægra frá árslokum 2000.