Fréttir


Fréttir: júní 2016

Fyrirsagnalisti

30.6.2016 : Fjármálaeftirlitið (FME) birtir upplýsingar um iðgjöld og samanlagða markaðshlutdeild erlendra vátryggingafélaga á Íslandi 2010 – 2014

FME hefur tekið saman tölulegar upplýsingar um starfsemi erlendra vátryggingafélaga á Íslandi árin 2010-2014. Félög þessi hafa höfuðstöðvar sínar á Evrópska efnahagssvæðinu og hafa heimild til starfsemi á Íslandi á grundvelli IX. kafla laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum sem fjármála- og/eða vátryggingaeftirlit í viðkomandi ríkjum sendu FME. Tekið skal fram að réttmæti gagnanna er á ábyrgð viðkomandi eftirlita. Meðfylgjandi töflum er ætlað að gefa mynd af umfangi starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi og þar með heildarstærð þeirra á markaði í einstökum greinum. Hafa ber í huga að markaðshlutdeild erlendra vátryggingafélaga getur tekið breytingum í takt við sveiflur á gengi íslensku krónunnar.

Lesa meira

28.6.2016 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:

Lesa meira

28.6.2016 : Fjármálaeftirlitið birtir ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum

Fjármálaeftirlitið hefur birt ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum fyrir reikningsárið 2015 með samræmdri uppsetningu. Birtir eru rekstrar- og efnahagsreikningar, ásamt sjóðsstreymi. Í þeim tilvikum sem vátryggingafélag er hluti af samstæðu eru birtir móðurfélagsreikningar.

Lesa meira

24.6.2016 : Túlkun - Birting upplýsinga um niðurstöður útboða fjármálagerninga og Tilkynningarskylda fruminnherja samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Fjármálaeftirlitið hefur birt túlkanir á vef sínum sem bera yfirskriftina: Birting upplýsinga um niðurstöður útboða fjármálagerninga og Tilkynningarskylda fruminnherja samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti . Í fyrri túlkuninni er fjallað um hvenær eigi að birta niðurstöður útboða í tilviki fjármálagerninga. Í síðari túlkuninni er fjallað um tilkynningarskyldu fruminnherja í tilviki verðbréfalána.

Lesa meira

16.6.2016 : Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2015

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga ársins 2015 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum (einu nafni lánastofnanir), verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlunum, rekstrarfélögum verðbréfasjóða, ásamt upplýsingum um heildareignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri einstakra rekstrarfélaga og heildareignir fagfjárfestasjóða í rekstri rekstrarfélaga og annarra rekstraraðila. Jafnframt eru nánar tilteknar upplýsingar um greiðslustofnanir og innlánsdeildir samvinnufélaga.

Lesa meira

10.6.2016 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Arion banka hf. hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Verði tryggingum hf. og Verði líftryggingum hf.

Hinn 2. júní sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Arion banki hf. sé hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Verði tryggingum hf., sem nemur 100%, sbr. VI. kafla laga nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi.

Lesa meira

7.6.2016 : Netsambandslaust við FME í nótt

Vegna vinnu við húsnæði í Höfðatúni 2, verður netsambandslaust við Fjármálaeftirlitið frá miðnætti í kvöld til kl. 09:00 í fyrramálið, miðv. 8 júní.

Lesa meira

7.6.2016 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns.

Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:

Lesa meira

1.6.2016 : Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2016 er í dag

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins er haldinn í Salnum í Kópavogi í dag 1. júní og hefst fundurinn klukkan 15:00 síðdegis. Á fundinum er Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2016 kynnt.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica