Fréttir


Upplýsingar frá FATF um áhættusöm ríki

22.11.2017

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á yfirlýsingu Financial Action Task Force (FATF) sem samþykkt var í kjölfar fundar hins alþjóðlega framkvæmdahóps hinn 3. nóvember sl.

Í nefndri yfirlýsingu kemur fram að ríki, sem eru aðilar að FATF, skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafa gagnvart Norður-Kóreu, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkisins gagnvart aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá kemur fram að ríkin skuli ráðleggja fjármálastofnunum að beita aukinni áreiðanleikakönnun gagnvart einstaklingum og lögaðilum frá Íran vegna hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Í samræmi við 2. mgr. 26. gr. laga nr. 64/2006 beinir Fjármálaeftirlitið tilmælum til tilkynningarskyldra aðila, sem falla undir a-e- og m-n-liði 1. mgr. 2. gr. laganna, að gæta sérstakrar varúðar í viðskiptum við aðila frá Norður-Kóreu, hvort heldur einstaklinga eða lögaðila, þar með talda aðila í fjármálaþjónustu. Þá eru tilkynningarskyldir aðilar hvattir til að beita aukinni áreiðanleikakönnun gagnvart einstaklingum og lögaðilum frá Íran.

Í kjölfar nefnds fundar FATF var einnig gefin út skýrsla um úrbætur í málefnum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á alþjóðlegum vettvangi. Í skýrslunni er að finna eftirfarandi lista yfir ríki sem nýverið hafa lýst yfir vilja til að framfylgja aðgerðaráætlun, sem unnin er í samstarfi við FATF, til að taka á þeim alvarlegu annmörkum sem eru þar til staðar á þessu sviði:

  • Bosnía og Hersegóvína
  • Eþíópía
  •  Írak
  • Jemen
  • Srí Lanka
  • Sýrland
  • Trínidad og Tóbagó
  • Túnis
  • Vanúatú

Í samræmi við fyrrgreinda 2. mgr. 26. gr. laga nr. 64/2006, beinir Fjármálaeftirlitið tilmælum til tilkynningarskyldra aðila að gefa aðilum frá nefndum ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Hér má finna yfirlýsingu FATF og skýrsluna.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica