Fréttir


Ný gögn um íslenska banka í evrópskum samanburði

5.12.2019

Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (European Banking Authority, EBA) hefur birt í sjötta sinn upplýsingar um rekstur og efnahag 131 banka á Evrópska efnahagssvæðinu. Birtar eru upplýsingar um hvern og einn banka. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn eru í annað sinn með í þessum samanburði.

Um er að ræða upplýsingar á borð við eigið fé, eiginfjárhlutfall, vogunarhlutfall, vanskilahlutfall, kostnaðarhlutfall o.fl. Að þessu sinni eru gögnin í ársfjórðungslegri upplausn og því hægt að sjá hvernig stærðirnar þróast yfir 12 mánaða rekstrartímabil frá þriðja ársfjórðungi síðasta árs til annars ársfjórðungs þessa árs. Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vefslóðinni https://eba.europa.eu/risk-analysis-and-data/eu-wide-transparency-exercise

Tilgangurinn með birtingu þessara upplýsinga á einum stað og á samanburðarhæfu formi er að styðja við gagnsæi og aðhald á evrópskum bankamarkaði. Á vefsíðu EBA má finna handhæga leið til að bera saman upplýsingar um einstaka banka og skoða gögnin með myndrænum hætti. Vefslóðin er https://tools.eba.europa.eu/interactive-tools//2019/powerbi/tr19_visualisation_page.html

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica