Fréttir


Fjármálaeftirlitið stóreflir rannsóknir vegna mögulegra brota sem tengjast bankahruninu

3.6.2010

Fjármálaeftirlitið (FME) mun á næstu vikum og mánuðum stórefla rannsóknarhóp sinn sem sinnir athugunum á mögulegum brotum í tengslum við bankahrunið. FME mun bæta við 12 nýjum starfsmönnum í hópinn en hann vinnur í nánu samstarfi við embætti Sérstaks saksóknara. Fyrir eru fimm öflugir einstaklingar í hópnum þannig að með þessari viðbót mun hann meira en þrefaldast að stærð.

FME hefur nú þegar beint 33 málum til Sérstaks saksóknara sem er stór hluti þeirra mála sem þegar er í vinnslu þar. Auk samvinnu við embætti Sérstaks saksóknara vinnur rannsóknarhópur Fjármálaeftirlitsins náið með slitastjórnum, fjármálafyrirtækjum, erlendum eftirlitum og lögregluyfirvöldum.

Eins og fram hefur komið er stefnt að því að fjölga starfsmönnum embættis Sérstaks saksóknara í  um  80. Því er mikilvægt að stækka rannsóknarhóp FME samhliða svo stofnunin geti annað því hlutverki að rannsaka mál  áður en þau eru kærð eða þeim vísað til Sérstaks saksóknara.

Skýrt hefur verið frá því að stefnt sé að því að öllum málum verði lokið hjá embætti Sérstaks saksóknara fyrir árslok 2014. Það er því mikilvægt að FME hafi afl til að ljúka sínum þætti rannsókna nokkuð hratt. Jafnframt leggur FME áherslu á að ekki myndist flöskuháls sem kemur í veg fyrir að embætti Sérstaks saksóknara hafi nægan fjölda mála til rannsóknar.

Þegar ráðningum nýrra starfsmanna verður lokið, sem stefnt er að fyrir árslok 2010, er gert ráð fyrir að starfsmenn FME verði um 100 en þeir voru um 65 í október 2008. Starfsmönnum FME hefur því fjölgað talsvert frá hruni, ekki síst í hópi starfsmanna með reynslu af fjármálamarkaði. Mest hefur þeim fjölgað á Lánasviði, sem fer með eftirlit með fjármálafyrirtækjum og  á sviði upplýsingatækni. Starfsemi innan þessara sviða var meðal annars gagnrýnd í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
 
Gert er ráð fyrir að nýju starfsmennirnir tólf verði ráðnir í tveimur til þremur lotum. Munu fyrstu auglýsingar birtast í dagblöðum og á Starfatorgi um næstu helgi. Þar er leitað að viðskiptafræðingum, hagfræðingum eða verkfræðingum auk lögfræðings. Þessir einstaklingar þurfa að geta rýnt í, skilið og greint flókin viðskipti, séð hvort um möguleg brot sé að ræða, sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt auk þess að geta komið frá sér efni í ræðu og riti.

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, s: 525-2700 eða gsm 840-3861.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica