Fréttir


Endanlegur frestur veittur til að ljúka skilmálum fjármálagernings um uppgjör

15.6.2009

Fjármálaeftirlitinu hefur reynst nauðsynlegt að fresta endanlegu uppgjöri á milli nýju bankanna og gömlu bankanna, eins og nánar hefur verið tilgreint í ákvörðunum eftirlitsins þann 6. mars 2009 og 15. maí 2009. Í síðarnefndu ákvörðuninni var sagt að endanleg ákvörðun um frest yrði tekin eigi síðar en í dag. Nú standa yfir viðræður milli eiganda nýju bankanna og skilanefnda gömlu bankanna um endanlegt uppgjör þeirra á milli. Ljóst er að tíma þarf til að ganga frá endanlegum skilmálum fjármálagerningsins á milli aðila vegna umfangs og eðlis uppgjörsins. Í því sambandi er mikilvægt að hlutaðeigandi aðilar fái tækifæri til að kynna sér þau gögn og þær upplýsingar sem liggja fyrir, þ.m.t. skýrslur varðandi mat á þeim eignum sem ráðstafað var. Við ákvörðun frestsins er að áliti Fjármálaeftirlitsins jafnframt mikilvægt að horfa til þess að nýju bankarnir hafa þegar hafið starfsemi og brýnt er að staða þeirra vegna uppgjörsins verði skýr og að forsendur efnahagsreiknings liggi fyrir sem fyrst. Af þeim ástæðum hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að skilmálar fjármálagernings um uppgjör vegna ráðstöfunar eigna og skulda gömlu bankanna til nýju bankana skulu liggja fyrir af hálfu aðila eigi síðar en þann 17. júlí 2009.  

Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, s: 525-2700 eða gsm 840-3861.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica