Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Spron hf.

8.4.2009

Þann 21. mars 2009 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Spron hf. og skipa skilanefnd fyrir bankann. Skilanefnd bankans tók ákvörðun um að loka útibúum bankans þann dag. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Spron hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Spron hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs (http://www.tryggingarsjodur.is).
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica