Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf.

30.3.2009

Þann 9. mars 2009 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf. og skipa skilanefnd fyrir bankann. Skilanefnd bankans tók ákvörðun um að loka bankanum þann dag. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs (http://www.tryggingarsjodur.is).

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica