Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Kaupþings banka hf.

30.10.2008

Þann 9. október 2008 var Kaupþing Edge vefsíða Kaupþings banka hf. orðin óvirk. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Kaupþing banki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Kaupþings banka hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingarsjóðs (http://www.tryggingarsjodur.is).

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica