Fréttir


Greiðsluskylda Tryggingasjóðs vegna Landsbanka Íslands hf.

27.10.2008

Þann 6. október sl. var Icesave vefsíða Landsbanka Íslands hf. orðin óvirk. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Landsbanki Íslands hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Landsbanka Íslands hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingasjóðs (http://www.tryggingarsjodur.is).

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica