Fréttir


Leiðbeinandi tilmæli um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja

24.9.2008

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út leiðbeinandi tilmæli nr. 3/2008 um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja. Tilmælin hafa það að markmiði að leiðbeina forstöðumönnum endurskoðunardeilda hjá fjármálafyrirtækjum um hvernig innri endurskoðun skuli sinnt eins og best verður á kosið. Innri endurskoðun er hluti af skipulagi fjármálafyrirtækja og er mikilvægur þáttur í eftirlitskerfi þeirra.

Tilmælin mæla m.a. fyrir um hvernig skipulagi endurskoðunardeildar skuli háttað, hvernig sjálfstæði deildarinnar skuli tryggt og hver skulu vera helstu verkefni deildarinnar. Auk framangreinds má nefna að m.a. er kveðið er á um hvernig samskiptum innri endurskoðanda annars vegar og ytri endurskoðanda og Fjármálaeftirlitsins hins vegar skuli háttað.

Tilmælin má finna hér.

Nánari upplýsingar veitir: Íris Björk Hreinsdóttir, iris@fme.is, GSM: 869-2733.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica