Fréttir


Námskeið í útfyllingu skýrslu um sundurliðun fjárfestinga lífeyrissjóða

14.5.2008

Fjármálaeftirlitið stendur fyrir námskeiði fyrir lífeyrissjóði þar sem farið verður yfir útfyllingu skýrslu um sundurliðun fjárfestinga lífeyrissjóða.

Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 27. maí nk. kl. 10 - 12. Tilgangur námskeiðsins er að dýpka skilning eftirlitsskyldra aðila á skýrslunni, en á námskeiðinu verður bæði farið yfir efnið með umfjöllun og dæmayfirferð.

Þeir aðilar sem koma að útfyllingu og skilum á skýrslunni eru sérstaklega hvattir til að mæta, svo og aðrir sem hafa áhuga á að fá kynningu á útfyllingu hennar.

 

Nánari upplýsingar og skráning sendist á póstfangið fme@fme.is eigi síðar en 20. maí nk. Athygli er vakin á því að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Kynningin verður haldin á Grand hótel, 4. hæð, Háteigi A.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica