Fréttir


Vanskil útlána hjá innlánsstofnunum í árslok 2007.

17.4.2008

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við árslok 2007 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskila-upplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.

Yfirlitið sýnir að hlutfall vanskila af útlánum er tæplega 0,4% sem er lítillega lægra en það var í lok næsta ársfjórðungs á undan þegar hlutfallið var 0,5%. Í árslok 2006 var hlutfallið rúmlega 0,5%. Vanskilahlutfallið nú hefur ekki verið lægra frá árslokum 2000. Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar. Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 0,6% og 0,9% af útlánum sem eru lítillega lægri hlutföll en voru í lok 3. ársfjórðungs 2007. Í árslok 2006 voru sambærileg hlutföll 0,8% og 1,3%. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum  kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga.

Vanskilahlutfall fyrirtækja er 0,3% samanborið við 0,4% í lok 3. ársfjórðungs 2007. Í árslok 2006 var hlutfallið 0,5%. Vanskilahlutföll fyrirtækja miðað við annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf eru 0,5% og 0,8% sem eru lítillega lægri hlutföll en voru í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í árslok 2006 voru sambærileg hlutföll 0,7% og tæplega 1,2%.

Vanskilahlutfall einstaklinga er 0,7% sem er lítillega lægra en var í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í árslok 2006 var hlutfallið tæplega 0,8%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 0,8% og 1,1% sem eru lítillega lægri hlutföll en voru í lok 3. ársfjórðungs 2007. Í árslok 2006 voru sambærileg hlutföll 1,1% og 1,8%.
 
Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Ragnar Hafliðason hjá Fjármálaeftirlitinu: „Vanskil útlána hjá innlánsstofnunum í árslok 2007 eru lítillega lægri en þau voru í lok næstu ársfjórðunga á undan og hafa ekki verið lægri sem hlutfall af útlánum á síðustu 7 árum.”

Vanskil útlána hjá innlánsstofnunum í árslok 2007.

Frett.17.04.2008.Vaskil_17.04.2008

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica