Fréttir


FME veitir Askar Capital hf. starfsleyfi sem fjárfestingabanki.

30.8.2007

Fjármálaeftirlitið veitti Askar Capital hf., þann 29. ágúst 2007, starfsleyfi sem lánafyrirtæki (fjárfestingarbanki), samkvæmt 3. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. 

Starfsleyfi Askar Capital hf. tekur m.a. til móttöku endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi annarra en innlána, veitingu útlána sem fjármögnuð eru með endurgreiðanlegum fjármunum frá almenningi og viðskipti og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti (eignastýring). Askar Capital hefur jafnframt starfsheimildir samkvæmt 1-3. tl., 6-7. tl., 9. tl. og 11-12. tl. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, þó eingöngu fyrir eigin reikning skv. 7. tl.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica