Fréttir


Aðvaranir á heimasíðu FME

2.3.2007

Nokkuð hefur borið á því að erlendir aðilar hafi samband við einstaklinga hér á landi og bjóðist til að hafa milligöngu um hlutabréfaviðskipti í erlendum fyrirtækjum. Fjármálaeftirlitið varar við tilboðum af þessu tagi og vekur athygli á lista yfir aðvaranir sem birtur er á heimasíðu FME og inniheldur aðvaranir frá systurstofnunum FME í Evrópu. ,,Íslenskur fjármálamarkaður hefur verið mikið til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum síðastliðin tvö ár sem hefur vakið áhuga ýmissa aðila og því miður eru fjársvikamenn þar ekki undanskildir”, segir Hlynur Jónsson, sviðsstjóri verðbréfasviðs FME. Hlynur segir að almennt beri fólki að vara sig á tilboðum óþekktra aðila sem bjóðast til þess að hafa milligöngu um erlend hlutabréfakaup. Hann hvetur fólk til þess að kanna gaumgæfilega bakgrunn slíkra aðila. ,,Listinn yfir aðvaranir á heimasíðu FME er ágætis byrjunarreitur hvað þetta varðar”, segir Hlynur.  Að sögn Hlyns er mikilvægt að þeir sem hafa verið í samskiptum við slíka aðila með einum eða öðrum hætti sendi FME ábendingar með nöfnum fyrirtækjanna sem um ræðir eða aðilanna svo að hægt sé að vara við þeim hér á Íslandi sem og í gegnum eftirlitsstofnanir annarsstaðar í heiminum.   

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica