Fréttir


Fjármálaeftirlitið gefur út leiðbeinandi tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

13.6.2014

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út endurskoðuð leiðbeinandi tilmæli nr. 5/2014 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Tilmælin eru sett til leiðbeiningar og nánari skýringar fyrir tilkynningarskylda aðila, á lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tilmælin leysa af hólmi leiðbeinandi tilmæli nr. 3/2011 um sama efni.

Í umsagnarferli tilmælanna bárust athugasemdir og ábendingar sem nýttust vel við gerð þeirra. Fjármálaeftirlitið þakkar umsagnaraðilum fyrir veittar umsagnir.

Tilmælin hafa verið birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins og má sjá þau hér.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica