Fréttir


Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2014

27.5.2014

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2014 verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 28. maí klukkan 16:00 í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpar fundinn í upphafi. Aðrir ræðumenn verða Halla Sigrún Hjartardóttir, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Jón Þór Sturluson aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Til fundarins er boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica