Fréttir


Drög að reglum um heimild Fjármálaeftirlitsins til að ljúka máli með sátt

7.5.2014

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 9/2014 með drögum að reglum um heimild Fjármálaeftirlitsins til að ljúka máli með sátt.

Fjármálaeftirlitið hefur einnig sent dreifibréf til viðeigandi aðila þar sem þeim er gefinn kostur á að gera athugasemdir við drögin. Þá eru skjölin birt á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is.

Umsagnareyðublað má nálgast á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins með því að velja „Lög og tilmæli"-flipann á forsíðu og velja svo flokkinn „Umræðuskjöl“. Umsagnareyðublaðið skal sent á netfangið fme@fme.is.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica