Fréttir


Heimild til flutnings vátryggingastofns

3.1.2012

Fjármálaeftirlitið hefur veitt Sjóvá-Almennum tryggingum hf. heimild til að flytja vátryggingastofn barnatryggingar félagsins til Sjóvár Almennra líftrygginga hf.  Heimild til yfirfærslu stofnsins gildir frá og með 29. desember 2011. 

Fjármálaeftirlitið birti tilkynningu á heimasíðu sinni, 29. nóvember sl., þar sem óskað var eftir skriflegum athugasemdum vátryggingartaka, vátryggðra eða annarra sem hafa hagsmuna að gæta varðandi flutning vátryggingastofnsins í samræmi við 2. mgr. 82. gr. laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi.  Höfðu fyrrnefndir aðilar 30 daga frest til að koma athugasemdum sínum á framfæri.  Ekki voru gerðar neinar athugasemdir.   

Samkvæmt 4. mgr. 82. gr. fyrrnefndra laga, halda réttindi og skyldur vátryggingartaka, vátryggðra og annarra sem hagsmuna hafa að gæta, samkvæmt vátryggingarsamningum, sjálfkrafa gildi sínu við flutning á vátryggingastofni.  Vátryggingartakar geta sagt upp vátryggingarsamningi sínum við félagið frá þeim degi sem flutningur stofnsins er heimilaður, tilkynni þeir uppsögn skriflega innan eins mánaðar.  Flutningsdagur í þessu sambandi getur ekki verið afturvirkur. 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica