Fréttir


Morgunverðarfundi Fjármálaeftirlitsins um FinTech - Framtíð fjármálaþjónustu og eftirlits verður streymt á vef

8.2.2018

Morgunverðarfundi Fjármáleftirlitsins um FinTech – Framtíð Fjármálaþjónustu og eftirlits, sem haldinn verður í fyrramálið, verður streymt hér á vefnum. Dagskrá hefst klukkan 8:45 og stendur til 10:30.

Á fundinum verður, eins og fram hefur komið, fjallað um þróun og framtíð fjármálaþjónustu, væntanlegar breytingar í lagaumhverfi fjármálamarkaðarins og samspil eftirlits og FinTech. 

Fyrirlesarar eru þrír:

  • Sýn FME á FinTech Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins
  • Ný greiðsluþjónustulög, „open banking“ og öryggi greiðslumiðlunar Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna
  • FinTech og markaðssamvinna – horft til Norðurlandanna og Bretlands Fríða Jónsdóttir, ráðgjafi hjá Deloitte í London

Að erindum loknum verða pallborðsumræður sem Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, tekur þátt í ásamt framsögumönnum. Fundarstjóri er Helena Pálsdóttir, sérfræðingur í áhættugreiningu hjá Fjármálaeftirlitinu.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica