Fréttir


Kröfu í máli gegn Fjármálaeftirlitinu hafnað í héraðsdómi

11.6.2015

Niðurstaða héraðsdóms liggur nú fyrir í máli Icelandair Group gegn Fjármálaeftirlitinu vegna ákvörðunar stofnunarinnar frá því í mars 2014 um að sekta Icelandair Group hf. (Icelandair) vegna brota gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.

Kröfum stefnanda var hafnað og ákvörðunin stendur því óbreytt. Ekki liggur fyrir hvort áfrýjað verður til Hæstaréttar.

Gera má ráð fyrir að dómurinn verði birtur á vef héraðsdómstólanna fljótlega.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica