Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið Siglu ehf., Snæból ehf., Gana ehf., Finn Reyr Stefánsson og Tómas Kristjánsson hæf til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.

15.10.2014

Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigla ehf., Snæból ehf., Gani ehf., Finnur Reyr Stefánsson og Tómas Kristjánsson, séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf. sem nemur 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hið fyrstnefnda félag fer með eignarhlutinn með beinni hlutdeild en hinir síðarnefndu aðilar með óbeinni hlutdeild. Samkvæmt tilkynningu frá Siglu ehf., fer félagið  nú með 16,175% eignarhlut í Straumi fjárfestingabanka hf.
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica