Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. og Vátryggingafélag Íslands hf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf.

3.11.2017

Hinn 15. október sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf. sem næmi 100%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Þá komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689-2009, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf., sem næmi allt að 33% með óbeinni hlutdeild í gegnum eignarhald á Kviku, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica