Fréttir


Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. og Vátryggingafélag Íslands hf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf.

8.11.2017

Hinn 1. nóvember sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf. sem næmi allt að 50%, skv. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 120/2011 um greiðsluþjónustu.  

Þá komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689-2009, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf., sem næmi allt að 20% með óbeinni hlutdeild í gegnum eignarhald á Kviku, skv. VI. kafla laga nr. 161/2002, sbr. lög nr. 120/2011 um greiðsluþjónustu.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica