Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: desember 2017

Fyrirsagnalisti

1.12.2017 : Niðurstaða athugunar á fylgni tveggja fjárfestingarsjóða í rekstri Stefnis hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á starfsemi Stefnis hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017. Athugunin beindist að fylgni tveggja fjárfestingarsjóða í rekstri Stefnis hf. við 1. mgr. 59. gr., sbr. 2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Í nefndum lagaákvæðum eru settar þær takmarkanir á eignasafn sjóðs að honum er hvorki heimilt að eignast meira en 10% af skuldaskjölum einstakra útgefenda verðbréfa, þó aldrei umfram 25% í hverri útgáfu, né meira en 10% af peningamarkaðsgerningum einstakra útgefenda. Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðanna um síðastliðin áramót. 

Lesa meira

1.12.2017 : Niðurstaða athugunar á fylgni verðbréfasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á starfsemi Landsbréfa hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017. Athugunin beindist að fylgni tiltekins verðbréfasjóðs í rekstri Landsbréfa hf. við  2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Í nefndum lagaákvæðum eru settar þær takmarkanir á eignasafn sjóðsins að honum er hvorki heimilt að eignast meira en 10% af skuldaskjölum einstakra útgefenda verðbréfa, þó aldrei umfram 25% í hverri útgáfu, né meira en 10% af peningamarkaðsgerningum einstakra útgefenda. Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðsins um síðastliðin áramót.

Lesa meira

1.12.2017 : Niðurstaða athugunar á fylgni tveggja sjóða í rekstri GAMMA Capital Management hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á starfsemi GAMMA Capital Management hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017. Athugunin beindist að fylgni þriggja sjóða í rekstri GAMMA Capital Management hf. við fjárfestingarheimildir 1. mgr. 59. gr., sbr. 2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðanna um síðastliðin áramót.

Lesa meira

1.12.2017 : Niðurstaða athugunar á fylgni fjárfestingarsjóðs í rekstri Júpíter rekstrarfélags hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á starfsemi Júpíter rekstrarfélags hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017. Athugunin beindist að fylgni tiltekins fjárfestingarsjóðs í rekstri Júpíter rekstrarfélags hf. við fjárfestingarheimildir 1. mgr. 59. gr., sbr. 2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Í nefndum lagaákvæðum eru settar þær takmarkanir á eignasafn sjóðs að honum er hvorki heimilt að eignast meira en 10% af skuldaskjölum einstakra útgefenda verðbréfa, þó aldrei umfram 25% í hverri útgáfu, né meira en 10% af peningamarkaðsgerningum einstakra útgefenda. Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðsins um síðastliðin áramót.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica