Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: október 2019

Fyrirsagnalisti

29.10.2019 : Samkomulag um sátt vegna brota Kviku banka hf.

Hinn 19. september 2019 gerðu Fjármálaeftirlitið og Kvika banki hf. (Kvika, málsaðili) með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brota gegn 2. mgr. 21. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (fftl.).

Lesa meira

25.10.2019 : Niðurstaða athugunar á virðismatsaðferðum á útlánum Arion banka hf. til fimm viðskiptamanna og aðila tengdum þeim

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi vettvangsathugun hjá Arion banka hf. í febrúar og mars 2019. Niðurstaða lá fyrir í október 2019.

Lesa meira

22.10.2019 : Niðurstaða athugunar á fjárfestingarferli Tryggingamiðstöðvarinnar

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi vettvangsathugun hjá Tryggingamiðstöðinni hf. í maí 2019 og lá niðurstaða fyrir í september síðastliðnum. 

Lesa meira

17.10.2019 : Niðurstaða um brot Orkuveitu Reykjavíkur á 126. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 4. október 2019 komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Orkuveita Reykjavíkur hefði brotið gegn 3. ml. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) þar sem Orkuveita Reykjavíkur tilkynnti Fjármálaeftirlitinu ekki samdægurs um að hafa lánað viðskiptavaka skuldabréf útgefin af félaginu (svokölluð verðbréfalán). Um var að ræða tvö verðbréfalán til viðskiptavaka á tímabilinu 7. mars 2018 til 7. mars 2019.

Lesa meira

2.10.2019 : Niðurstaða könnunar- og matsferlis hjá Landsbankanum hf.

Fjármálaeftirlitið leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem metin eru kerfislega mikilvæg fer slíkt mat fram árlega.

Lesa meira

2.10.2019 : Niðurstaða könnunar- og matsferlis hjá Íslandsbanka hf.

Fjármálaeftirlitið leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem metin eru kerfislega mikilvæg fer slíkt mat fram árlega.

Lesa meira

2.10.2019 : Niðurstaða könnunar- og matsferlis hjá Arion banka hf.

Fjármálaeftirlitið leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem metin eru kerfislega mikilvæg fer slíkt mat fram árlega.

Lesa meira

2.10.2019 : Brot fjárfestingarsjóðs í rekstri Júpíters rekstrarfélags hf. gegn 1. mgr. 39. gr., sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011

Fjármálaeftirlitinu barst tilkynning frá Júpíter rekstrarfélagi hf. þann 8. mars 2019 þess efnis að fjárfestingarsjóður í rekstri félagsins hefði farið út fyrir fjárfestingarheimildir 1. mgr. 39. gr., sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði þann 7. mars 2019. Í 1. mgr. fyrrgreinds lagaákvæðis er tiltekið að fjárfestingarsjóðum sé heimilt að fjárfesta í hlutdeildarskírteinum annarra verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Þó er þeim ekki heimilt að binda meira en 20% af eignum sínum í hlutdeildarskírteinum einstakra verðbréfasjóða eða fjárfestingarsjóða. Brotið varð vegna misskilnings sjóðsstjóra og bakvinnslu.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica