Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: desember 2015

Fyrirsagnalisti

9.12.2015 : Niðurstaða athugunar á umfangi veittra ívilnana hjá Landsbankanum hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á fyrri hluta árs 2015 á umfangi veittra ívilnana hjá Landsbankanum hf. Markmið athugunarinnar var að leggja mat á umfang ívilnana og hvort skráning, eftirlit og skýrslugjöf bankans til Fjármálaeftirlitsins vegna þeirra væri fullnægjandi. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í nóvember 2015.

Lesa meira

8.12.2015 : Niðurstöður athugunar á veð- og tryggingakerfi Landsbankans hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á veð- og tryggingakerfi Landsbankans hf. í febrúar 2015. Samkvæmt 17. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 (fftl.) skal fjármálafyrirtæki á hverjum tíma hafa yfir að ráða tryggu eftirlitskerfi með áhættu í tengslum við alla starfsemi sína, þ.á m. útlána- og mótaðilaáhættu.

Lesa meira

8.12.2015 : Niðurstöður athugunar á veð- og tryggingakerfi Íslandsbanka hf.

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á veð- og tryggingakerfi Íslandsbanka hf. í febrúar 2015. Samkvæmt 17. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 (fftl.) skal fjármálafyrirtæki á hverjum tíma hafa yfir að ráða tryggu eftirlitskerfi með áhættu í tengslum við alla starfsemi sína, þ.á m. útlána- og mótaðilaáhættu.

Lesa meira

4.12.2015 : Stjórnvaldssekt vegna brots Arion banka hf. gegn 1. tölulið 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti

Hinn 18. nóvember 2015 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins þá ákvörðun að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 30.000.000 króna á Arion banka hf. (Arion banki, bankinn) vegna brots gegn 1. tölulið 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) með því að hafa hinn 24. febrúar 2014 selt hlutabréf sem bankinn átti í Högum hf. á sama tíma og bankinn bjó yfir innherjaupplýsingum sem vörðuðu Haga hf.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica