Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: október 2015

Fyrirsagnalisti

9.10.2015 : Niðurstaða athugunar um ákvörðun iðgjalda eigna- og ábyrgðartrygginga

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á ákvörðun iðgjalda eigna- og ábyrgðartrygginga hjá Vátryggingafélagi Íslands hf., Sjóvá-Almennum tryggingum hf., Tryggingamiðstöðinni hf. og Verði tryggingum hf. í lok árs 2014. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort verðlagning skaðatryggingafélaganna fjögurra á eigna- og ábyrgðartryggingum væri í samræmi við 65. gr. laga nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi, en þar segir að iðgjöld vátrygginga sem í boði eru hér á landi skuli vera í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingunum felst og eðlilegan rekstrarkostnað, en Fjármálaeftirlitið leggur áherslu á að áhættumat í tengslum við ákvörðun iðgjalda sé markvisst og öflugt. Athugunin beindist að útboðum opinberra aðila ásamt tilboðum til stærstu viðskiptavina hvers félags. Verkferlar félaganna voru skoðaðir, ásamt verð- og afsláttarstefnum. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í ágúst 2015 að undangengnum samskiptum við hlutaðeigandi vátryggingafélag hverju sinni.

Lesa meira

2.10.2015 : Niðurstaða athugunar á upplýsingagjöf Tryggja ehf. til viðskiptavina félagsins

Fjármálaeftirlitið sendi vátryggingamiðlurum dreifibréf þann 7. janúar 2015 þar sem óskað var eftir upplýsingum um samstarf vátryggingamiðlara við vátryggingafélög. Í kjölfarið tók Fjármálaeftirlitið upplýsingagjöf Tryggja ehf. til viðskiptavina félagsins til athugunar með það að markmiði að kanna hvort upplýsingagjöfin væri í samræmi við eftirfarandi lagaákvæði. Niðurstöður lágu fyrir í ágúst 2015. 

Lesa meira

1.10.2015 : Niðurstaða athugunar á lánveitingum Lífeyrissjóðs bænda

Á öðrum ársfjórðungi 2015 hóf Fjármálaeftirlitið athugun á lánveitingum Lífeyrissjóðs bænda. Kallað var eftir upplýsingum og gögnum um tíu hæstu og tíu nýjustu lánin í flokki fasteignatryggðra lána. Níu lán voru tekin til frekari skoðunar.

Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica