Ákvarðanir og gagnsæi


Ákvarðanir og gagnsæi: febrúar 2012

Fyrirsagnalisti

15.2.2012 : Fjármálaeftirlitið samþykkir yfirfærslu fyrirtækjaráðgjafar Saga Capital hf. til MP banka hf.

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 9. febrúar sl. yfirfærslu einstaka rekstrarhluta Saga Capital hf., kt. 660906-1260, til MP banka hf., kt. 540502-2930, samkvæmt 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Um er að ræða sölu á fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital hf.

Lesa meira

2.2.2012 : Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli EA fjárfestingarfélags hf. gegn Fjármálaeftirlitinu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hinn 24. október 2011 í máli EA fjárfestingarfélags gegn Fjármálaeftirlitinu. Niðurstaða dómsins var að felld var úr gildi ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins frá 31. maí 2011 um álagningu stjórnvaldssektar á EA fjárfestingarfélag vegna brots gegn 30. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, um takmarkanir á stórum áhættum. Lesa meira






Þetta vefsvæði byggir á Eplica