Ákvarðanir og gagnsæi


Eftirfylgni vegna athugunar Fjármálaeftirlitsins á starfsemi Lífeyrissjóðs bankamanna

26.4.2013

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi athugun á fjárfestingum og fjárfestingarákvörðunum hjá Lífeyrissjóði bankamanna. Í kjölfar athugunarinnar ritaði Fjármálaeftirlitið skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan tiltekinna tímamarka. Í kjölfarið, eða þann 11. desember 2012, birti Fjármálaeftirlitið gagnsæistilkynningu þar sem gerð var grein fyrir helstu athugasemdum stofnunarinnar við starfsemi félagsins. Fjármálaeftirlitið hefur nú lokið eftirfylgni með skýrslunni. 
 
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica