Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á starfsemi Lífeyrissjóðs Rangæinga

19.6.2012

Framkvæmd var athugun á starfsemi Lífeyrissjóðs Rangæinga með heimsókn og gagnaöflun þann 18. október 2011 með vísan til 44. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í kjölfar athugunarinnar rituðu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna tímamarka. Voru drög að skýrslunni afhent sjóðnum þann 16. janúar 2012 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og frekari upplýsingum á framfæri. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 24. apríl 2012, var tekið tillit til þeirra athugasemda eftir því sem tilefni þótti til.

Lifeyrissjodur-Rangaeinga-19-6

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica